Verkefni skulu taka mið af markmiðum sjóðsins sem eru að auka hæfni og menntun verslunar- og skrifstofufólks ásamt því að stuðla að auknu framboði af námi og námsefni sem svarar þörfum atvinnulífsins á hverjum tíma. Að sama skapi stuðlar sjóðurinn að auknu svigrúmi til rannsókna sem geta leitt af sér aukin gæði og/eða fjölbreyttari valkosti fyrir verslunar- og skrifstofufólk.
Hver eru viðmið sjóðsins?
Hverjir geta sótt um?
Fyrirtæki, fræðsluaðilar með viðurkenningu frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu og sérfræðingar úr háskólasamfélaginu.
Hvers konar verkefni koma til greina?
Nýsköpunar- og þróunarverkefni sem hafa yfirfærslugildi, verkefni sem nýtast öðrum innan starfsstéttarinnar og rannsóknir á málefnum greinarinnar.
Umsóknarferlið
Styrkupphæð fer eftir umfangi verkefnisins og er metin hverju sinni af stjórn sjóðsins.
Sótt er um með því að fylla út eyðublað og senda það á starfsmennt@starfsmennt.is
Skila skal inn fjárhagsáætlun með umsókn.
Mat á umsóknum
Stjórn SVS leggur mat á umsóknir um nýsköpunar- og þróunarstyrk í sjóðinn. Lagt er mat á umsóknir út frá eftirfarandi viðmiðum:
- Er um að ræða nýbreytni eða endurnýjun?
- Felur verkefnið í sér yfirfærslugildi, geta aðrir nýtt sér verkefnið?
- Hefur verkefnið jákvæð áhrif á starfstéttina?
- Eru markmið verkefnisins skýr og lýkur á að árangur náist?