Fyrirtæki geta fengið allt að 4 milljónum í heildarstyrki á hverju almanaksári frá SVS.
Fyrirtækjastyrkir eru aðskildir einstaklingsstyrkjum og hefur úthlutun fyrirtækjastyrks engin áhrif á réttindi einstaklinga.
Umsóknir fyrirtækja fara í gegnum Áttin.is
Skilyrði fyrir styrk til fyrirtækja:
- Fyrirtæki þarf að hafa greitt iðgjöld í sjóðinn samfellt sl. 12 mánuði til að eiga rétt á styrk.
- Sækja þarf um styrk innan 12 mánaða frá útgáfu reiknings.
- Fyrirtæki getur ekki sótt um styrk vegna náms/námskeiðs sem einstaklingur hefur fengið styrk fyrir. Athygli er vakin á sameiginlegum styrk einstaklings og fyrirtækis þegar nám kostar kr. 200.000 eða meira - sjá nánar hér.
Stjórn getur heimilað sérstaka undanþágu frá þessum ákvæðum ef verkefni felur í sér frumkvöðlastarf eða nýsköpun.