Námskeið þarf að uppfylla eftirfarandi:
Skilgreint upphaf og endir
Opið öllum
Ráðgjöf, persónuleg áætlun og handleiðsla uppfylla ekki skilyrði námskeiðs
Upplýsingar aðgengilegar
Fylgir fyrirfram ákveðinni áætlun eða skilgreiningu
Neðangreindar upptalningar eru nánari útfærsla á starfsreglum SVS og gilda sem slíkar
Nám til eininga
Aukin réttindi
Tungumálanám
Styrkhæft nám
Allt nám til eininga óháð starfi, nám og próf sem veita/viðhalda auknum réttindum til starfa, tungumálanámskeið og raunfærnimat. Sjá nánar um íslenskukennslu hér.
Fellur að viðmiðum um námskeið
Starfstengt námskeið
Ráðgjöf, handleiðsla og meðferðarúrræði eru ekki styrkhæf
Styrkhæft námskeið
Námskeið sem tengist núverandi starfi viðkomandi félaga - ef óljóst er hvernig námskeiðið tengist starfi þá þarf rökstuðningur að fylgja umsókninni.
Einkatímar/ einkakennsla sem tengist starfstengdu námskeiði er ekki styrkhæft.
Fellur að viðmiðum um námskeið
Verður að vera forvörn, ekki meðferð
Eingöngu sjálfstyrkingarnámskeið innanlands
Starfstengd markþjálfun
Styrkhæf sjálfstyrking
Sjálfsstyrkingarnámskeið innanlands sem eru fyrirbyggjandi og/eða styrkjandi. Dæmi: Markmiðasetning, framkoma, samskipti, streitustjórnun, leiðtogahæfni.
Athugið að sjóðnum er ekki ætlað að styrkja líkamsrækt, æfingagjöld eða námskeið sem hafa það að markmiði að vinna með heilsubrest einstaklinga. Námskeið sem eru hluti af meðferðarúrræðum vegna heilsubrests eru því ekki styrkt sérstaklega af starfsmenntasjóðnum. Dæmi: Námskeið/ráðgjöf/meðferð v. kvíða, kulnunar, þunglyndis.
STARFSTENGD MARKÞJÁLFUN
Starfstengd markþjálfun og stjórnendamarkþjálfun er styrkhæf sem starfstengd sjálfstyrking þó svo markþjálfun falli ekki að viðmiðum sjóðsins um námskeið. Fjöldi tíma verða að vera sýnilegir á reikningi.
Önnur markþjálfun er ekki styrkhæf hjá sjóðnum.
Fellur að viðmiðum um námskeið
Starfstengt námskeið
Áskrift
Styrkhæft netnámskeið
Starfstengt netnám - getur verið stakt netnámskeið eða áskrift að vefsíðu/efnisveitu með starfstengdum námskeiðum. Ekki er hægt að sækja um styrk vegna hugbúnaðarkaupa jafnvel þótt kennsluefni fylgi með.
Ráðstefna með skipulagðri dagskrá
Eingöngu ráðstefnugjald
Hlekkur á vefsíðu og dagskrá þarf að fylgja umsókn
Styrkhæf ráðstefna
Ráðstefna sem tengist starfi viðkomandi félaga - ef óljóst er hvernig ráðstefnan tengist starfi þá þarf rökstuðningur að fylgja umsókninni.
Athugið að hægt er að sækja um ferðstyrk vegna gisti- og ferðakostnaðar með sérumsókn. Sjá nánar hér
Fellur að viðmiðum um námskeið
Byrjendanámskeið en ekki iðkun í sama fagi
Greiddur reikningur
Eingöngu tómstund innanlands
Styrkhæft tómstundanámskeið
Tómstundanámskeið innanlands verða að falla að viðmiðum sjóðsins um námskeið, sjá nánar 5. grein í starfsreglum sjóðsins. Tómstundanámskeið erlendis eru EKKI styrkhæf.
Þau mega vera byrjendanámskeið, en athuga skal sérstaklega að iðkun í sama fagi er ekki styrkhæf.
Litið er á öll líkamsræktartengd námskeið, svo sem yoga, dans, golf, skíði, tennis, hlaup o.fl. sem iðkun nema þau séu skilgreind byrjendanámskeið. Athugið ekki er hægt að fá styrk oftar en einu sinni vegna byrjendanámskeiðs í sömu grein.
Námskeið sem hafa þann tilgang að undirbúa einstaklinga undir ákveðna viðburði/keppni teljast ekki styrkhæf hjá sjóðnum.
Einkatímar í tómstund og meðferðarúrræði falla ekki undir viðmið sjóðsins um námskeið.
Ferð tengist starfstengdu námi, ráðstefnu eða námskeiði
Skila þarf inn sérumsókn um ferðastyrk
Greiddir reikningar
Ferðastyrkir
Hægt er að sækja um styrk vegna ferða- og gistikostnaðar þegar félagi sækir starfstengt nám, námskeið, starfstengda fræðsluferð fyrirtækis eða ráðstefnu. Sjá nánar Ferðastyrkir til einstaklinga